Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur krafist þess að hjálparstarfsmönnum verði hleypt inn í Yarmouk-flóttamannabúðir Palestínumanna í Damaskus í mannúðarskyni. Starfsmaður SÞ segir í samtali við BBC að aðstæður þeirra 18 þúsund flóttamanna sem eru í búðunum séu ómannlegar.
Ástandið þar hefur versnað enn frekar síðustu daga en 1. apríl gerðu liðsmenn Ríkis íslams árás á búðirnar.
Palestínskir skæruliðar, sem eru andsnúnir stjórnvöldum í Sýrlandi og liðsmenn Frjálsa sýrlenskra hersins (Free Syrian Army), leiða baráttuna gegn liðsmönnum Ríkis íslams um búðirnar.
Dina Kawar, fulltrúi Jórdaníu í öryggisráðinu, segir að það sé lífsspursmál að vernda íbúa í flóttamannabúðunum og að sögn Pierres Krahenbuhls hjá palestínsku neyðarsamtökunum Unwra er ástandið skelfilegra en nokkru sinni fyrr. Hann flutti öryggisráðinu skýrslu um ástandið í búðunum í gærkvöldi.
Sendiherra Palestínu hjá SÞ, Riyad Mansour, segir að það sé forgangsmál ríkisstjórnar Palestínu að koma flóttamönnunum til bjargar. Hann biðlar til ríkja Sþ um að koma flóttamönnunum fyrir annars staðar í Sýrlandi eða í öðrum ríkjum.
Á BBC kemur fram að það hafi alltaf verið áhyggjuefni hjá sýrlensku ríkisstjórninni að Yarmouk-flóttamannabúðirnar yrðu notaðar sem stökkpallur uppreisnarmanna inn í höfuðborgina vegna staðsetningar búðanna. Samkvæmt fréttum virðist sem Ríki íslams ráði yfir 90% af búðunum, sem þýðir að hreyfingin nálgast hjarta Damaskus hægt og bítandi.
Sprengjum hefur verið varpað á flóttamannabúðirnar úr þyrlum stjórnarhersins þrátt fyrir að stjórnarandstæðingar saki ríkisstjórnina um að styðja aðgerðir Ríkis íslams svo hægt verði að afgreiða alla uppreisnarmenn sem hóp hryðjuverkamanna.