Fundist hefur brak úr bandarísku þyrlunni sem hefur verið saknað síðan skjálfti upp á 7,3 stig reið yfir fyrir í vikunni. Brak þyrlunnar fannst skammt frá landamærum Kína, samkvæmt upplýsingum frá nepalska hernum.
Um borð voru sex bandarískir landgönguliðar og tveir nepalskir hermenn en þeir eru hluti af björgunarliði sem sinnir mannúðaraðstoð á hamafarasvæðum þar í landi.
Þyrlan er af gerðinni UH-1 Huey og tilheyrir hún sveit landgönguliða Bandaríkjanna. Áhöfnin hafði nýlokið við að skila af sér vistum og hjálpargögnum til bágstaddra á þriðjudag þegar allt samband við hana rofnaði.
Herforingi sem AFP fréttastofan ræddi við í morgun segir að ekki sé vitað hvort einhver úr áhöfn þyrlunnar hafi komist lífs af þar sem þeir hafi aðeins séð brakið úr lofti. Verið er að reyna að lenda skammt frá slysstaðnum og fá það staðfest að um þyrluna sé að ræða.