Vagninn var á 32 km hraða

Rússíbaninn The Smiler.
Rússíbaninn The Smiler. Af Wikipedia

Einn þeirra fjögurra sem slösuðust alvarlega í rússíbana í skemmtigarðinum Alton Towers í Staffordsskíri á Bretlandseyjum í gær er 18 ára nemandi frá Yorksskíri.

Ungi maðurinn var í garðinum með kærustu sinni og öðrum nemendum þegar vagnar í rússíbananum lentu í árekstri. Samnemendur hans hafa sent honum skilaboð í dag í gegnum samfélagsmiðla.

Talsmaður garðsins segir að vagninn með þeim slösuðust hafi verið á rúmlega 32 kílómetra hraða á klukkustund þegar slysið varð.

Einn missti fót í rússíbanaslysinu

Slösuðust alvarlega í rússíbana

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert