Saumakonan útvegaði verkfærin

Joyce Mitchell smyglaði verkfærum til fanganna tveggja sem sluppu úr fangelsi í New York í Bandaríkjunum á laugardaginn. Yfirvöld greindu frá þessu í dag. Mitchell starfaði í fangelsinu sem saumakona.

Þeir Richard Matt og David Sweat notuðu verkfærin til þess að brjótast út úr fangelsinu og hefur leit staðið yfir af þeim í sex daga. Rannsókn málsins hefur beinst að Mitchell eftir að í ljós kom að hún ætti mögulega í ástarsambandi við Matt.

Eiginmaður Mitchell, sem starfar einnig í fangelsinu, hefur verið yfirheyrður en hann er mögulega grunaður um aðild að málinu. Blöð úr járnsögum, borhlutar og tvö gleraugu með ljósi eru meðal þeirra verkfæra sem Mitchell útvegaði föngunum.

Rannsóknarmenn hafa gefið í skyn að Mitchell hafi verið heilluð af föngunum og samþykkt að sækja þá í bíl þegar þær væru komnir fyrir utan veggi fangelsisins. Hún skipti þó um skoðun og fór á sjúkrahús vegna kvíðakasts daginn sem fangarnir sluppu. 

Samkvæmt The Wall Street Journal hefur Mitchell verið rannsökuð af yfirvöldum síðasta árið vegna sambands hennar og Matt. Þau kynntust þegar þau unnu bæði á saumastofu fangelsisins. Ekki voru næg sönnunargögn til þess að bregðast við meintu sambandi þeirra en Matt fékk ekki að starfa á saumastofunni áfram.

Uppfært klukkan 23:28:

Samkvæmt frétt NBC hefur Mitchell verið handtekin og ákærð fyrir að aðstoða fangana við það að sleppa. 

Fyrri fréttir mbl.is:

„Hún hélt að þetta væri ást“

Sáu morðingj­ana í garðinum 

Strokufang­arn­ir gætu hafa fengið aðstoð

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert