Dómari við alríkisdómstól í Bandaríkjunum dæmdi í kvöld Dzhokhar Tsarnaev, sem ásamt bróður sínum Tamerlan stóð að sprengjuárásinni á Boston-maraþonið 2013, formlega til dauða.
Hinn 21 árs gamli Tsarnaev bað fórnarlömb sín afsökunar þegar hann tjáði sig í fyrsta sinn opinberlega um málið í dómssalnum í kvöld.
„Ég vil nú biðja fórnarlömbin og þá sem komust lífs af afsökunar,“ sagði hann. „Ég er sekur.“ Það væri enginn vafi á því.
Kviðdómur dæmdi hann einróma til dauða 15. maí síðastliðinn. Hann tjáði sig aldrei við réttarhöldin.
Þetta er í fyrsta sinn sem Tsarnaev sýnir opinbera iðrun vegna árásanna sem kostuðu þrjá lífið og særðu 264 aðra.