Stjórnvöld í Túnis hafa staðfest að í það minnsta 37 manns hafi látið lífið í hryðjuverkaárás sem gerð var á baðströnd í bænum Sousse fyrr í dag. Þá eru að minnsta kosti 36 manns særðir, sumir alvarlega.
Chokri Nafti, talsmaður heilbrigðisráðuneytisins, sagðist ekki geta gefið upplýsingar um þjóðerni fórnarlambanna, en fram kemur í frétt AFP að talið sé að meirihluti þeirra hafi verið erlendir ferðamenn, meðal annars frá Þýskalandi, Bretlandi og Belgíu.
Þá hafa írsk stjórnvöld staðfest að að írsk kona sé á meðal þeirra sem féllu í árásinni.
Öryggissveitir felldu einn mann sem er grunaður um árásina. Hann er sagður hafa falið Kalashnikov-hríðskotariffil undir sólhlíf á ströndinni áður en hann tók hann upp og hóf skothríð. Í framhaldinu gekk hann inn á Hotel Imperial Marhaba í gegnum sundlaugarsvæðið og skaut hann á fólk er hann færði sig á milli svæða.
Fréttir mbl.is:
Með hríðskotariffil undir sólhlíf