Bandarísku flugfélögin Delta og American Airlines hafa ákveðið að banna flutning á stórum dýrum sem hafa verið drepin af veiðimönnum. Bannið sett í kjölfarið á drápinu á ljóninu Cecil sem bandarískur tannlæknir drap nýverið í Simbabve.
Í frétt BBC kemur fram að flugfélögin segi að bannið nái til ljóna, nashyrninga, hlébarða, fíla og vísunda.
Delta flýgur á milli Bandaríkjanna og fjölmargra afrískra borga en American Airlines flýgur til átta borga í Afríku sunnan Sahara.
Drápið á Cecil var ólöglegt og hafa yfirvöld í Simbabve farið fram á að tannlæknirinn, Walter Palmer, verði framseldur sem og bandarískur læknir, Jan Casimir, sem er grunaður um að hafa drepið ljón í landinu í apríl.