Leiðsögumaðurinn sem hefur verið sakaður um að hjálpa til við drápið á ljóninu Cecil sagði í samtali við fjölmiðla í dag að hann hafi ekki gert neitt rangt. Eins og áður hefur komið fram á bandaríski tannlæknirinn Walter Palmer að hafa greitt leiðsögumanninum Theo Bronkhorst fimmtíu þúsund Bandaríkjadali fyrir að lokka ljónið úr þjóðgarði með beitu svo að Palmer gæti skotið það með boga og ör. Talið er að það hafi tekið Cecil um fjörutíu klukkustundir að deyja og hefur málið vakið heimsathygli og mikla reiði.
Cecil var eitt ástsælasta ljón Afríku. Hann var þrettán ára gamall þegar hann drapst í síðasta mánuði. Cecil hafði m.a. verið rannsakaður af teymi vísindamanna frá Oxford háskóla.
„Mér finnst eins og ég hafi ekki gert neitt rangt,“ sagði Bronkhorst í samtali við NBC. „Þetta hefur verið mjög erfiður tími fyrir mig og mína fjölskyldu. Við höfum verið dregin í eitthvað sem við erum ekki ánægð með.“
Bronkhorst hefur lýst yfir sakleysi sínu en hann var ákærður fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir ólöglega veiði. Hann var látinn laus gegn tryggingu í síðustu viku en mun koma fram fyrir dómara á morgun.
Oppah Muchinguri, umhverfisráðherra Simbabve, hefur kallað eftir því að Palmer verði framseldur til landsins og svari fyrir ólögleg athæfi sín. Eins og áður hefur komið fram hefur tannlæknirinn beðist afsökunar á drápinu og vill meina að hann hafi verið blekktur af Bronkhorst sem skipulagði veiðiferðina.
Palmer gætti átt yfir höfði sér tíu ára fangelsi verði hann framseldur. Landeigandinn Honest Ndlovu hefur einnig verið sakaður um að aðstoða Palmer. Hann hefur hinsvegar ekki enn verið formlega ákærður.
Bronkhorst býr í Bulawayo, næst stærstu borg Simbabve og þar rekur hann fyrirtækið Bushman Safari Zimbabwe ásamt eiginkonu sinni og tveimur sonum. Á Facebook síðu fyrirtækisins má sjá rúmlega 170 myndir af veiðimönnum ásamt bráðum sínum.