Að minnsta kosti 300 eru slasaðir eftir tvær gríðarlegar sprengingar sem urðu í kínversku borginni Tianjin klukkan 23:30 að staðartíma. Samkvæmt kínverskum miðlum sprakk sprengiefni sem verið var að flytja við höfnina í borginni.
Höggbylgan sem fylgdi sprengingunum var gríðarlega öflug og fann fólk fyrir henni marga kílómetra í burtu. Myndband af sprengingunni gengur nú um netið, en ekki er ljóst hversu margir létust. Talið er þó að tala látinna gæti verið há.
Slökkviliðið í Tianjin var kallað út um klukkan 22:50 að staðartíma þegar eldur hafði komið upp. Fyrri prengingin varð svo um fjörtíu mínútum síðar. Síðari sprenging fylgdi á eftir og var enn öflugri. Fjórir slökkviliðsmenn eru slasaðir og tveggja er saknað.
Eyðilegging er gríðarleg í kringum þann stað sem sprengingarnar urðu, og eru fjölmörg hús þar jöfnuð við jörðu. Samkvæmt slökkviliðinu er verið að slökkva eldinn sem sprengingin olli, en tekist hefur að halda honum í skefjum. Þá urðu nærliggjandi svæði rafmagnslaus.
„Þegar sprengingin varð byrjaði jörðin að nötra. Bílar og hús í kring nötruðu og rúður brotnuðu í sumum húsum. Allir byrjuðu að hlaupa,“ sagði Yang, sem varð vitni að sprengingunni, í samtali við breska ríkisútvarpið. „Nú eru allir komnir saman á götum úti.“
Tianjin er fjórða stærsta borg Kína, en rúmlega 15 milljónir manna búa í borginni sem er í um 100 kílómetra fjarlægð frá Peking.
Fjöldi fólks hefur birt myndir og skilaboð á Twitter undir myllumerkinu #tianjin og ljóst er að áhrifin eru gríðarleg.