Játar að hafa framið morð í IKEA

AFP

Annar mannanna sem grunaður er um morðin í IKEA-verslun í Svíþjóð játaði á sig morðin í dag. Fyrr í dag komst hann aftur til meðvitundar eftir að hafa verið fluttur á spítala strax í kjölfar morðanna eftir misheppnaða sjálfsmorðstilraun. 

Játaði hann á sig brotið í yfirheyrslu strax eftir að hann komst til meðvitundar. Hinn karlmaðurinn sem grunaður er um morðin segist saklaus. Yfirheyrslur yfir honum halda áfram á morgun áður en tekist verður á um hvort hann eigi áfram að sitja í gæsluvarðhaldi. Lögmaður hans hefur krafist þess að hann verði leystur úr gæsluvarðhaldinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert