Lögmaður Mohamed Morsi, fyrrverandi forseta Egyptalands, og fleiri manna sem voru dæmdir til dauða í maímánuði hefur áfrýjað dómnum.
Morsi var fundinn sekur um að hafa frelsað fanga úr fanglesum á meðan uppreisninni gegn Hosni Mubarak, þáverandi forseta Egyptalands, stóð árið 2011.
„Við höfum áfrýjað til Cassation-dómstólsins fyrir hönd allra fanganna, þar á meðal Morsi,“ sagði lögmaðurinn Abdel Moneim Abdel Masqsud.
Yfir hundrað aðrir sakborningar, sem tóku þátt í aðgerðunum með Morsi, hafa einnig verið dæmdir til dauða.
Í aprílmánuði var Morsi jafnframt dæmdur í tuttugu ára fangelsi vegna morða á mótmælendum í forsetatíð hans.
Morsi var hrakinn frá völdum af hernum í júlí árið 2013 í kjölfar fjölmenntra og tíðra mótmæla á götum úti. Stjórnvöld bönnuðu einnig stjórnmálaflokk hans og handtóku þúsundir stuðningsmanna hans.