Tala látinna vegna sprenginganna í kínversku hafnarborginni Tianjin á miðvikudag er komin í 104, að sögn kínverska ríkisfjölmiðilsins Xinhua.
Í morgun var hafist handa við að rýma íbúðahverfi í nágrenni sprengjusvæðisins. Yfirvöld hræðast að efnamengun sé á svæðinu, en mjög eitruð natríum blásýra (e. sodium cyanide) fannst á svæðinu.
Er óttast að efnin muni dreifast víðar um svæðið.
721 maður hefur verið fluttur á spítala. Af hinum látnu eru 21 slökkviliðsmaður.
Á samfélagsmiðlum í Kína hefur aðkoma yfirvalda verið harðlega gagnrýnd og sá fjöldi björgunarmanna sem fórst við hjálparstarfið.
Eins er gagnrýnt hvernig frásagnir ríkisfjölmiðla í Kína eru af hörmungum sem þessum. Þeir upphefji þá sem koma að björgunarstarfinu og sleppi því að greina frá því hvað olli hörmungunum.