Öryggismálaráðherra Taílands segir skotmark árásarmanna sem komu sprengju fyrir í mótorhjóli fyrir framan Erawan hofið í dag og varð að minnsta kosti tólf að bana hafa verið ferðamenn.
„Þetta var TNT sprengja.. Fólkið sem gerði þetta beindi þessu að ferðamönnum með það að markmiði að skaða ferðaþjónustuna og efnahagslífið,“ sagði Prawit Wongsuwong.
Sjá einnig: Öflug sprenging í Bangkok
Þúsundir heimsækja Erawan hofið á degi hverjum, en þar er meðal annars að finna styttuna Phra Phrom af gyðjunni Brahma. Samkvæmt fréttum AFP fréttaveitunnar voru líkamshlutar á víð og dreif um götuna fyrir framan hofið eftir sprenginguna.
Sprengjan sprakk um klukkan 19 á staðartíma og varð að minnsta kosti tólf til bana. Hátt í tuttugu slösuðust. Nærliggjandi svæði hafa verið rýmd en fregnir herma að fleiri sprengjur séu á staðnum. Sprengingin varð sökum mótorhjólasprengju og hefur önnur sprengja fundist á svæðinu samkvæmt taílenskum fjölmiðlum, en unnið er að því að aftengja hana.
Ekki er vitað hver eða hverjir standa að baki árásinni.