Hópur íbúa kínversku borgarinnar Tianjin kom sama í dag og krafðist þess að fá greiddar bætur frá stjórnvöldum vegna sprenginga sem lögðu heimili þeirra í rúst í síðustu viku.
Fólkið kom saman fyrir utan Mayfair hótelið þar sem borgaryfirvöld hafa haldið blaðamannafundi vegna sprenginganna á hafnarsvæði borgarinnar þann 12. ágúst sl.
Að sögn mótmælenda var vöruhúsið, sem natríumblásýrusaltið var geymt, byggt ólöglega og allt of nálægt heimilum þeirra, að því er segir í frétt BBC.
Samkvæmt borgaryfirvöldum létust 114 í sprengingunum en enn er 70 saknað. Flestir þeirra sem er saknað eru slökkviliðsmenn sem tóku þátt í björgunarstarfinu. Tæplega 700 eru enn á sjúkrahúsi en um sex þúsund manns eru á vergangi þar sem um 17 þúsund íbúðir skemmdust í sprengingunum og eftirskjálftum þeirra.
Samkvæmt BBC er unnið að rannsókn á því hvað olli sprengingunum en talið er nánast fullvíst að þær megi rekja til natríumblásýrusaltsins sem geymt var í vöruhúsinu. Nokkur hundruð tonn af eiturefninu voru geymd í vöruhúsinu og er það margfalt meira magn en heimilt er. Vöruhúsið er í innan við 500 metra fjarlægð frá fjölbýlishúsum.
Natríumblásýrusalt er meðal annars notað við vinnslu málmblendis og málmgrýtis og við rafhúðun.