Enginn um borð í flugvél Trigana Air sem fórst í austurhluta Indónesíu lifði slysið af en lík allra fundust í flugvélaflakinu.
Alls voru 54 um borð í flugvélinni sem fórst á sunnudag. Björgunarmenn komust að brakinu í nótt og segja þeir að vélin sé gjörónýt. Mjög slæmt veður hefur verið á þessum slóðum og tafði það fyrir björgunarmönnum sem urðu frá að hverfa í gær.