Bandaríska verslunarkeðjan Walmart tilkynnti í gær að ákveðið hefði verið að hætta sölu á öflugum rifflum í öllum verslunum keðjunnar í Bandaríkjunum. Í fjölda ára hefur opinber þrýstingur verið á söluaðila að taka banvæn vopn úr sölu vegna fjölda skotárása í landinu.
Walmart er stærsti söluaðili byssa og skotfæra í landinu, en forsvarsmenn keðjunnar segja rifflana tekna úr sölu vegna minnkandi eftirspurnar eftir þeim. Í staðinn hyggjast stjórnendur verslunarinnar setja önnur skotfæri sérstaklega ætluð veiðimönnum í sölu.
Ávörðunin var tekin sama dag og fréttakona og upptökumaður bandarískrar sjónvarpsstöðvar voru myrt í skotárás í Virginíu. Byssan sem notuð var í árásinni var þó ekki úr Walmart, og að sögn Kory Lundberg, talsmanns Walmart, hafði ákvörðunin verið tekin áður en skotárásin átti sér stað.
Forsetaembætti Bandaríkjanna sendi í gær frá sér tilkynningu um að árásin sýni að herða þurfi reglur um byssueign í Bandaríkjunum.
Riffill eins og þeir sem Walmart hefur nú tekið úr sölu var meðal annars notaður í skotárás í kvikmyndahúsi í Colorado árið 2012 þar sem 12 manns létu lífið.