Taílenska lögreglan segir að tveggja sé leitað vegna sprengjutilræðisins í miðborg Bangkok fyrr í mánuðinum. Efni til sprengjugerðar fannst í íbúð í úthverfi borgarinnar.
Talsmaður lögreglunnar Prawut Thavornsir, segir að 26 ára gamallar konu sé leitað en hún heitir Wanna Suansan. Lögreglan hefur birt myndir af henni en auk þess er karlmanns leitað sem einnig býr í sömu íbúð. Lögregla hefur ekki upplýsingar um þjóðerni hans.
Á laugardag var ungur maður handtekinn vegna málsins en lögregla réðst inn á heimili mannsins mannsins. Þar fundust möguleg efni til sprengjugerðar.
Að sögn talsmanns lögreglu líkist maðurinn þeim sem lýst var eftir í kjölfar árásarinnar.
Fyrir tæpum tveimur vikum sprakk rörsprengja í hindúahelgidóminum Erawan í miðborg Bangkok þar sem 20 manns létust og yfir 120 særðust. Myndir af meintum tilræðismanni náðust með öryggismyndavélum og hefur hans verið ákaft leitað.