Javnaðarflokkurinn var sigurvegari kosninganna til Lögþings Færeyja sem fram fóru í dag. Flokkurinn bætti við sig 7,3% fylgi síðan í síðustu kosningum árið 2011. Sambandsflokkur Kaj Leo Johannesen lögmanns tapaði 6% fylgi en Fólkaflokkurinn tapaði 3,6% fylgi.
Fólkaflokkurinn missir því tvö sæti á þingi og Sambandsflokkurinn sömuleiðis. Hinsvegar bætir Javnaðarflokkurinn við sig tveimur sætum og er þá með átta sæti af 33. Fólkaflokkurinn og Sambandsflokkurinn standa uppi með sex sæti hvor.
Hægt er að sjá úrslitin á vef Kringvarpsins.
Eftir kosningarnar 2011 mynduðu Sambands- og Fólkaflokkurinn stjórn með tveimur minni flokkum, Miðflokknum og Framsókn. Miðflokkurinn tapaði 0,7% fylgi en Framsókn bætti við sig 0,6% fylgi milli kosninga. Flokkarnir voru báðir með tvö sæti hvor og halda þeir þeim.
Fyrri fréttir mbl.is:
Tekist á um hjónabönd samkynhneigðra