Margir eftirskjálftar hafa komið í kjölfar öflugs jarðskjálfta upp á 8,3 stig sem skók Chile í gærkvöldi með þeim afleiðingum að 11 manns létu lífið í það minnsta. Hafa þeir skotið íbúum landsins skelk í bringu samkvæmt frétt AFP. Jarðskjálftinn var sjötti öflugasti skjálftinn í sögu Chile og sá öflugasti sem mælst hefur í heiminum á þessu ári.
Tæplega ein milljón manna var flutt frá Kyrrahafsströnd landsins þar sem óttast væri að jarðskjálftinn, sem varð á hafi úti, myndi koma af stað flóðbylgju. „Þetta var martröð. Ég fann jörðina nötra í langan tíma, of langan. Og síðan alla eftirskjálftana. Þetta var hræðilegt. Ég gat ekki staðið í fæturna en sem betur fer lifðum við þetta af,“ er haft eftir Maríu Ramirez þar sem hún var að hreinsa til fyrir utan húsið sitt í dag. „Þetta var mjög hræðileg upplifun, hræðileg. Allt hreyfðist í langan tíma,“ segir Ana Cortes.
Jarðskjálftinn varð á litlu dýpi 228 kílómetra norður af höfuðborginni Santiago. 526 heimili skemmdust í skjálftanum hið minnsta segir í fréttinni. Flest í Coquimbo-héraði.