Sjónvarpskokkurinn Nigella Lawson segir að líf hennar „bragðist nokkuð vel“ þessa dagana en tvö ár eru síðan hún skildi við eiginmann sinn. Hann sást leggja á hana hendur á veitingastað. Nokkru síðar þurftu þau svo að mæta í dómsal til að útkljá mál gegn fyrrverandi aðstoðarmanni Nigellu.
Nigella er nú að fara gefa út sína tíundu matreiðslubók, Simply Nigella. Bókin kemur út í næsta mánuði og segir Nigella að boðskapur bókarinnar sé einmitt mjög einfaldur, eins og titillinn gefur til kynna.
„Bækurnar mínar hafa alltaf varpað ljósi á hvernig mér líður hverju sinni,“ sagði Nigella í viðtali við Mail on Sunday.
„Svo skilaboðin í Simply Nigellu eru einmitt mjög einföld: Hér er ég núna. Hér er maturinn minn, svona bragðast líf mitt í augnablikinu. Og líf mitt bragðast bara nokkuð vel.“
Tvö ár eru síðan að ljósmyndir af eiginmanni hennar, Charles Saatchi, að taka hana hálstaki á veitingastað birtust opinberlega.
Við réttarhöldin í máli þeirra Nigellu og Saatchi gegn fyrrverandi aðstoðarmanni hennar viðurkenndi hún svo að hafa neytt kókaíns. Þetta hafði m.a. þær afleiðingar að hún missti starf sem dómari í þættinum The Taste.