Forseti Egyptalands, Abdel Fattah al-Sisi, veitti kanadíska blaðamanninum Mohamed Fahmy sakaruppgjöf í dag en Fahmi starfar hjá Al-Jazeera sjónvarpsstöðinni.
Ríkisfréttastofa Egyptalands, MENA, segir að blaðamaðurinn og tveir aðrir sem voru fangelsaðir um leið og Fahmy hafi verið í hópi 100 fanga sem forsetinn náðaði í dag. Þar á meðal eru tvær baráttukonur, þær Sana Seif og Yara Sallam.
Fahmy var dæmdur í þriggja ára fangelsi vegna starfa sinna fyrir al-Jazeera English auk tveggja annarra en þeir voru fundnir sekir um að hafa starfað án leyfis og fyrir að birta efni skaðlegt Egyptalandi.