Japanski fjallgöngumaðurinn Nobukazu Kuriki, sem er aðeins með einn fingur eftir að hafa misst níu þegar hann gerði tilraun til að komast á topp Everest árið 2012, mun ekki komast á topp fjallsins að þessu sinni. Þetta er önnur tilraun hans á þessu ári til að ná á toppinn.
Kuriki, missti fingurna þegar hann kól illa. Hann er sá eini sem reynt hefur að komast á toppinn að undanförnu. Enginn hefur farið alla leið upp í ár en 18 manns létu lífið í grunnbúðum fjallsins þegar jarðskjálftar skóku Nepal í vor.
„Gerði mitt besta en áttaði mig á því að ég myndi ekki snúa til baka á lífi en ég færi lengra vegna sterkra vinda og mikillar snjókomu,“ tísti Kuriki á Twitter.
Frétt mbl.is: Reynir aftur við Everest