Spencer Stone, sem öðlaðist heimsfrægð eftir að hann tók þátt í að yfirbuga vopnaðan mann í franskri lest í sumar, er á batavegi en hann var stunginn fjórum sinnum í bringuna í fyrradag. Ráðist var á Stone í borginni Sacramento í Kaliforníu ríki.
Að sögn lækna er Stone vakandi og getur hann stigið upp úr rúmi sjálfur. Eins og fyrr segir var hann stunginn fjórum sinnum í bringuna aðfaranótt fimmtudags eftir að hann lenti í álfogum við hóp manna fyrir utan bar.
Stone undirgekkst tveggja tíma aðgerð og mun hann ná sér að fullu.
Lögregla leitar enn tveggja karlmanna en þeir eru grunaðir um verkanðinn. Samkvæmt heimildarmanni AFP reyndi Stone að verja vinkonu sína frá áreitni. Þá hófst rifrildið sem endaði með stunguárásinni.