Skar barn úr legi konunnar

AFP

Ólétt kona var stungin til bana og í kjölfarið skar árásarmaðurinn hana upp og fjarlægði barnið úr legi hennar.

Þetta telur lögreglan að hafi gerst fyrir 22 ára konu en lík hennar fannst í íbúð í Bronx hverfinu í New York borg. Á líkinu voru mörg stungusár. 

Er lögregla kom á vettvang var önnur kona á staðnum sem hélt á nýfæddu barni í fanginu. Sagðist hún sjálf hafa fætt barnið í átökum sem áttu sér stað. 

Blóðslóð var um allt húsið, á gangi og á baðherbergi og einnig í svefnherberginu þar sem konan fannst látin. Þá fannst einnig hnífur á vettvangi og fylgja úr legi konunnar við baðherbergið, að því er fram kemur í frétt Sky-sjónvarpsstöðvarinnar. 

Bráðaliðar komu barninu til bjargar og héldu í því lífi þar til sjúkrabílar komu á staðinn. Barnið virðist við ágæta heilsu.

Lögreglan er enn að reyna að átta sig á hvað raunverulega gerðist. Samkvæmt frétt Sky er konan sem hélt á barninu á vettvangi í gæsluvarðhaldi vegna málsins, grunuð um árásina.

Frétt Sky.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert