Forsætisráðherra Ítalíu, Matteo Renzi, hefur gagnrýnt skólastjórnanda einn í borginni Rozzano fyrir að hafa bannað árlega jólatónleika í skólanum í nafni fjölmenningar. „Jólin eru miklu mikilvægari en ögrandi hegðun skólastjóra,“ var haft eftir Renzi í ítölskum blöðum í dag.
Renzi var greinilega ekki ánægður með framgöngu skólastjórans og sagði að ef hann héldi að með þessu væri hann að ýta undir sameiningu í samfélaginu þá hefði hann gert mjög stór mistök.
Ákvörðun skólastjórans, Marco Parma, olli miklum deilum á Ítalíu og hafa fjölmiðlar greint náið frá málinu. Ákvað hann að fresta tónleikunum til janúar, taka í burtu alla tengingu við trúarbrögð og kalla þá vetrartónleika.
Þá hefur skólastjórinn einnig bannað tveimur mæðrum nemenda að kenna jólalög í skólanum í frímínútum.
„Í fjölmenningarsamfélagi veldur þetta vandamálum,“ er haft eftir Parma, en hann segir ákvörðunina hafa verið tekna í ljósi óánægju með fyrirkomulagið í fyrra. Sagði hann að í fyrra hefðu nokkrir foreldrar krafist þess að sungin yrðu jólalög, en múslimskir nemendur hefðu þá sleppt því að syngja í viðkomandi lögum.
Um þúsund nemendur eru í Garofani-grunnskólanum og er fimmtungur þeirra sagður annarrar trúar en kristni, flestir múslimar. Parma hefur sagst reiðubúinn til þess að missa starfið, en hann fari ekki ofan af ákvörðun sinni.
Kaþólska hefur ekki verið ríkistrú á Ítalíu síðan 1984 en enn eru lög í gildi frá tíma Mussolinis sem kveða á um róðukrossa í öllum skólum.