Maður sem er sakaður um að hafa myrt þrjá á heilsugæslustöð Planned Parenthood í Colorado í Bandaríkjunum á föstudaginn kom fram fyrir dómara í dag. Þar var honum tjáð að hann gæti verið dæmdur til dauða.
Sá ákærði, Robert Lewis Dear, klæddist varnarvesti og horfði niður þegar hann talaði við dómarann í gegnum sjónvarp. Fjölskyldumeðlimir fórnarlambanna fylgdust með í réttarsalnum.
Dear sagði lítið og svaraði spurningum dómarans ýmist játandi eða neitandi með rámri röddu.
Ef Dear er dæmdur sekur gæti hann verið dæmdur í lífstíðarfangelsi eða til dauða. Spurður hvort hann hefði einhverjar spurningar svaraði hann einfaldlega „Engar spurningar“.
Dear á að hafa farið inn á heilsugæslustöðina á föstudaginn vopnaður riffli. Þar drap hann lögreglumann og tvo almenna borgara. Þar að auki særði hann níu aðra. Fimm tímum eftir að hann gekk inn á heilsugæslustöðina gafst hann upp og var handtekinn af lögreglu.
Fyrri fréttir mbl.is: