Egypsk yfirvöld segja að ekki hafi neitt komið fram sem sanni að Ríki íslams hafi grandað rússneskri farþegaþotu sem fórst yfir Sínaí-skaga 31. október. Allir borð, 224, létust.
Þetta er frumniðurstaða rannsóknar egypskra yfirvalda sem birt var í morgun en því hefur verið haldið fram að hryðjuverkamenn hafi grandað flugvélinni.
Þetta kemur fram á vef Independent
Yfirmaður leyniþjónustu Rússlands greindi frá því í síðasta mánuði að hryðjuverk hafi verið að ræða þegar rússnesk þotan fórst.
„Leifar af útlendu sprengiefni fundust í braki Airbus vélarinnar,“ sagði Alexander Bortnikov yfirmaður leyniþjónustunnar á þeim tíma og að starfsmaður á flugvellinum í Sharm El Sheikh hafi komið sprengjunni fyrir.
Rússneskir sérfræðingar segja að þotan hafi splundrast á flugi þegar sprengjan sprakk en kraftur hennar jafnaðist á við eitt kíló af TNT.
Vladimír Pútín, Rússlandsforseti, hefur heitið því að að hafa uppi á og refsa þeim sem bera ábyrgð á hryðjuverkaárásinni. Ríki íslam hefur lýst sökinni á tilræðinu á hendur sér. Flestir þeirra sem létust voru Rússar á heimleið frá orlofsstaðnum Sharm el-Sheikh.