Ráðist var á sendiráð Sádi-Arabíu í Teheran, höfuðborg Írans fyrir skömmu. Fyrstu fréttir AFP-fréttaveitunnar greindu hvorki frá mannfalli né skemmdum á mannvirkjum.
Sádi-Arabar hafa verið gagnrýndir harðlega í dag úr ýmsum áttum vegna aftöku 47 fanga í morgun. Þeirra á meðal var Nimr al-Nimr, klerkur sjíta-múslíma sem hafði verið dæmdur til dauða fyrir glæpi tengda hryðjuverkum. Lát hans vakti hörð viðbrögð víða, m.a. í Íran og sendi ríkisstjórn landsins frá sér yfirlýsingu þar sem m.a. sagði að Sádi-Arabar muni þurfa að gjalda aftökuna dýru verði.
Uppfært 22:15: Í frétt bresku sjónvarpsstöðvarinnar ITV kemur fram að nokkur fjöldi fólks hafi brotist inn í sendráðið og kveikt elda. Lögregla hafi fljótlega komið á vettvang og rýmt svæðið að mestu. Samkvæmt AFP-fréttaveitunni kastaði fólkið bensínsprengjum og mótmælti aftöku al-Nimrs.
Frétt mbl.is: „Munum láta jörðina skjálfa undir fótum ykkar“
Frétt mbl.is: 47 fangar teknir af lífi í Sádi-Arabíu