Jihadi John lést í drónaárás í sýrlensku borginni Raqqa 12. nóvember á síðasta ári. Ríki íslams hefur staðfest þetta með því að birta eitthvað sem virðist vera minningargrein um skæruliðann en hans rétta nafn var Mohammed Emwazi. Greinin birtist í tímaritinu Dabiq og staðfestir grun bandarískra embættismanna sem sögðust á síðasta ári vera 99% vissir um að Emwazi hefði látið lífið í bandarískri drónaárás á bifreið.
Emwazi var 27 ára gamall og ólst upp að mestu leyti í Bretlandi. Hann kom fram í fjölmörgum aftökumyndböndum hryðjuverkasamtakanna og vakti breskur hreimur hans athygli og hlaut hann síðar viðurnefnið „Jihadi John“ í vestrænum fjölmiðlum.
Í greininni kemur fram að Emwazi hafi látist samstundis þegar bifreið sem hann var í var sprengd upp af dróna.
Er honum lýst sem „virðingarverðum bróður“ sem þekktur var fyrir „ miskunnsemi sína og örlæti". Er nefnt sem dæmi að hann hafi eitt sinn gefið frá sér hjákonu sína til „ógifts og særðs bróður“.
Emwazi birtist fyrst í aftökumyndbandi samtakanna í ágúst 2014 þar sem bandaríski blaðamaðurinn James Foley var tekinn af lífi. Í kjölfarið mátti sjá hann í mörgum öðrum myndböndum, til að mynda þegar bresku sjálfboðaliðarnir Alan Henning og David Haines voru teknir af lífi, og þegar bandaríski blaðamaðurinn Steven Sotloff og bandaríski sjálfboðaliðinn Abdul-Rahman Kassig voru drepnir.
Emwazi sást síðast í myndbandi þegar japanski blaðamaðurinn Kenji Goto var tekinn af lífi í janúar á síðasta ári.
Emwazi fæddist í Kúveit en flutti til Bretlands með fjölskyldu sinni þegar hann var sex ára gamall. Hann stundaði nám í tölvunarfræði við háskólann í Westminster en fór til Sýrlands í 2013. Hann og þrír aðrir skæruliðar Ríkis íslams voru kallaðir „Bítlarnir“ af gíslum þeirra vegna bresks hreims þeirra.