Japanir minntust þess í dag að fimm ár eru liðin síðan um 18.500 manns fórust í jarðskjálfta og mikilli flóðbylgju sem kom í kjölfar hans.
Flóðbylgjan varð til þess að kjarnorkuslys varð í Fukushima, sem er það versta frá kjarnorkuslysinu í Tsjernobyl árið 1986.
Akihito, Japanskeisari, Michiko keisaraynja og Shinzo Abe, forsætisráðherra tóku þátt í minningarathöfn í höfuðborginni Tókíó þar sem fórnarlambanna var minnst með þögn á nákvæmlega sama tíma og jarðskjálftinn reið yfir.
Flóðbylgjan sem fylgdi á eftir skjálftanum varð til þess að skólar og heilu hverfinu lentu á kafi í vatni og íbúar á norðausturströnd Japans flúðu á hærri grundu.
Fyrir utan þann fjölda sem fórst í skjálftanum og flóðbylgjunni er talið að um 3.400 manns hafi dáið úr veikindum og vegna sjálfsvíga síðan hörmungarnar gengu yfir.