Norska lögreglan hefur birt nöfn allra þeirra þrettán einstaklinga sem fórust í þyrluslysinu í landinu á föstudaginn.
Sjö nafnanna voru birt í morgun en núna hafa þau öll verið gerð opinber.
Ein kona var á meðal þeirra sem fórust og var hún 32 ára frá Bergen. Hún hét Silje Ye Rim Veivåg Krogsæther, að því er kom fram á vefsíðu Aftenposten.
Mennirnir tólf sem fórust voru á bilinu 35 til 60 ára og voru fimm þeirra einnig búsettir í Bergen.
Einn Breti var á meðal hinna látnu. Hann hét Ian Stuart og var 41 árs. Ítalski flugmaðurinn sem fórst í slysinu hét Michele Vimercati og var 44 ára.
Einn maður sem fórst var flóttamaður frá Íran og hafði búið í Noregi í 30 ár.
Ekkert neyðarkall barst frá þyrlunni þegar hún hrapaði við Turey í Hörðalandi. Þá bárust ekki skilaboð sem bentu til þess að eitthvað virkaði ekki sem skyldi.