Búið er að loka Andrews-herstöðinni í Maryland í Bandaríkjunum vegna upplýsinga um að byssumaður gangi laus á svæðinu. Byssumaðurinn er sagður „virkur“ í færslu herstöðvarinnar á Twitter.
Uppfært kl. 14.36: Samkvæmt frétt AP-fréttastofunnar segja lögregluyfirvöld að enginn byssumaður hafi fundist í herstöðinni.
Uppfærð frétt mbl.is: Enginn byssumaður í hestöðinni
BREAKING: Law enforcement official: Officials find no active shooter at Joint Base Andrews.
— The Associated Press (@AP) June 30, 2016
Talsmaður flughersins, Derek White, segir í samtali við BBC að byssumaðurinn sé staddur inni í sjúkrahúsi í herstöðinni.
Herstöðin, þar sem flugvél forseta landsins, Air Force One, er geymd, er í úthverfi Washington-borgar.
Starfsfólki í herstöðinni hefur verið fyrirskipað að leita skjóls og sjúkralið er komið á vettvang og í viðbragðsstöðu. AP-fréttastofan segir að sjúkrabílar með blikkandi ljós séu við herstöðina en þeir séu ekki með sírenur í gangi. Ekki er enn ljóst hvort að skotið hafi verið af byssu á svæðinu.
Í frétt BBC segir að talið sé að vart hafi orðið við byssumanninn á sama tíma og skotárásaræfing átti að fara fram í herstöðinni.
Herstöðin er heimili fleiri þúsund hermanna og fjölskyldna þeirra. Barack Obama Bandaríkjaforseti spilar þar golf reglulega.
Herstöðinni var einnig lokað í síðasta mánuði eftir að kona kom þangað inn og sagðist vera með sprengju. Hún var handtekin en í ljós kom að um gabb var að ræða.
The base was scheduled to conduct an active shooter exercise, however, reports of a real-world active shooter situation were reported.
— Joint Base Andrews (@JBA_NAFW) June 30, 2016