Michel Rocard látinn

Michel Rocard
Michel Rocard AFP

Michel Rocard, fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands, er látinn, 85 ára að aldri.

Rocard, sem var leiðtogi franskra sósíalista, gegndi embætti forsætisráðherra Frakklands á árunum 1988 til 1991, í stjórnartíð Francois Mitterrands, þáverandi forseta landsins.

Rocard lést á sjúkrahúsi í París í dag, að sögn Francis, sonar hans.

Hann átti að baki langan feril sem stjórnmálamaður. Hann var um tíma landbúnaðarráðherra og svo forsætisráðherra, eins og áður sagði. Hann sat auk þess þrjú kjörtímabil á Evrópuþinginu og barðist fyrir frekari samvinnu Evrópuríkja.

Oft var stirt á milli Rocards og Mitterrands, þrátt fyrir að þeir væru báðir úr Sósíalistaflokknum. Bauð Rocard sig tvisvar fram til forseta, árin 1981 og 1988, en í bæði skiptin var það Mitterrand sem náði kjöri.

Það vakti mikla athygli þegar Rocard gagnrýndi Mitterrand harðlega í blaðaviðtali árið 1998 og sakaði hann um óheilindi.

„Það sem ég átti erfiðast með að sætta mig við varðandi Mitterrand var að hann var ekki heiðarlegur maður,“ sagði Rocard.

Rocard sagði af sér embætti árið 1991 og sagði hann í viðtalinu að Mitterrand hefði þrýst mjög á sig að segja af sér. Sagði hann að líklega væri ekki að finna dæmi í franskri stjórnmálasögu um erfiðara samband á milli forseta og forsætisráðherra.

Rocard kom nokkrum sinnum hingað til lands en hann var mjög áhugasamur um norðurslóðir. Hann tók til að mynda þátt í Hringborði norðurslóða, Arctic Circle, í Hörpu þegar hann var sendiherra Frakklands gagnvart heimskautasvæðunum.

Frétt BBC

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert