Hasnat Karim fór með fjölskyldu sína á vinsæla kaffihúsið Holey Artisan Bakery í miðbæ Dhaku, höfuðborg Bangladess, á föstudagskvöld til að fagna átta ára afmæli yngsta sonar síns.
Makoto Okamura, sem var trúlofuð og hugðist gifta sig fljótlega, var að borða á staðnum á sama tíma með sex öðrum japönskum ríkisborgurum.
Simona Monti, sem var gengin sjö mánuði á leið, ætlaði að snúa aftur til Ítalíu til að fæða barn sitt, og var að kveðja vini sína í Bangladess á kaffihúsinu á sama tíma.
Karim og fjölskylda hans lifðu af þegar sjö byssumenn ruddust inn á kaffihúsið og hófu skothríð. Hinir gerðu það ekki.
Um klukkan 20:45 gengu sjö byssumenn, klæddir gallabuxum og stuttermabolum, inn á kaffihúsið. Þeir voru með töskur fullar af vopnum og öskruðu „Allahu Akbar“ eða „Guð er mestur“. Viðskiptavinir kaffihússins fóru undir borð og reyndu að fela sig frá byssumönnunum, og starfsfólk gerði slíkt hið sama. Diego Rossini, þjónn á staðnum, hljóp upp stiga sem leiddi að þaki kaffihússins. Þaðan stökk hann yfir á annað þak þar sem hann lá í margar klukkustundir. Hann var einn þeirra sem komst lífs af.
Annar hópur starfsfólks faldi sig á salerni á kaffihúsinu. Þar var tímabundið verið að geyma hveiti og ger svo hitinn hafði verið hækkaður þar inni. Átta starfsmenn höfðu troðið sér inn á salernið í steikjandi hita og áttu erfitt með andardrátt. Einn byssumannanna gekk upp að hurðinni og öskraði: „Ef þið eruð Bengalar, komið þá út“. Enginn svaraði. „Ef þið eruð múslímar, komið þá út“. Enginn svaraði. Byssumaðurinn læsti þá hurðinni að salerninu, haldandi að enginn væri þar inni. Það varð starfsmönnunum átta til lífs.
Tuttugu gíslar, flestir þeirra útlendingar, voru myrtir í árásinni. Tveir lögregluþjónar létu lífið og þrjátíu manns særðust. Liðsmenn öryggissveitarinnar björguðu þrettán manns eftir um tólf klukkutíma gíslatöku og umsátursástand. Þeir drápu sex vígamenn í leiðinni og handtóku einn.
Níu Ítalir, sjö Japanir, einn bandarískur ríkisborgari og einn Indverji voru á meðal þeirra sem myrtir voru.
Árásarmennirnir aðskildu útlendinga frá innlendum gestum staðarins. Morðingjarnir beittu eggvopnum á fórnarlömb sín.
Þeir sem komust lífs af gengu þó í gegnum hrylling á kaffihúsinu. Einn þeirra var bakarinn Miraj. Hann hafði falið sig, en vígamennirnir fundu hann. „Allir aðrir hlupu en þú náðir því ekki,“ sagði einn vígamannanna við Miraj. „Það þýðir að Guð vill að þú deyir.“
Vígamennirnir fóru með Miraj út, settu hann í stól og bundu sprengjur við hann. Þar kom hann til með að sitja og óttast um líf sitt þar til umsátursástandinu lauk, en þá slepptu vígamennirnir honum.
Þegar öryggissveitir ruddust loks inn á kaffihúsið vissu vígamennirnir hverju þeir ættu von á. Einn þeirra benti á líkin á gólfinu og sagði: „Við verðum eins og þau bráðum. Sjáumst öll í himnaríki.“
Innanríkisráðherra Bangladess sagði á laugardag að vígamennirnir hefðu ekki verið á vegum hryðjuverkasamtakanna Ríkis íslams, heldur hefði verið um að ræða heimamenn í bangladesskum öfgasamtökum sem hafa verið bönnuð í landinu í meira en áratug.
Ríki íslams hafði áður lýst yfir ábyrgð á árásinni en samtökin birtu meðal annars myndir af meintum árásarmönnum fyrir framan svartan ISIS-fána.
Tveggja daga þjóðarsorg stóð yfir á sunnudag og mánudag í Bangladess í dag til minningar um þá sem féllu í árásinni.
Ali Arsalan, einn eigenda Holey Artisan Bakery, sagði að enn væri óljóst um framtíð staðarins sem var opnaður fyrir tveimur árum síðan. „Ég get aldrei tryggt öryggi allra aftur. Það er ábyrgð sem verður mjög erfitt að bera.“
Frétt mbl.is: Gíslataka á kaffihúsi í Bangladess
Frétt mbl.is: Níu Ítalir myrtir í Dhaka
Frétt mbl.is: Skildu að útlendinga og heimamenn