Maður réðst á farþega í lest í Þýskalandi vopnaður öxi í kvöld. Fjórir eru særðir, þar af þrír alvarlega. Þá eru fjórtán aðrir farþegar sagðir í áfalli.
Árásin mun hafa átt sér stað í lest á milli Wurzburg-Heidingsfeld og Ochsenfurt í Þýskalandi.
Þýska lögregla hefur staðfest að hún hafi skotið árársarmanninn og sé hann látinn.
Sjónarvottar greina frá því á Twitter að fjölmennt lið lögreglu sé á svæðinu og þyrla sveimi yfir því.
Ambulances and EMS in #Würzburg after the attack with an axe in a train, at least 21 injured. Pics via @huethi89 pic.twitter.com/P5gJPk9yn0
— Abraxas Spa (@AbraxasSpa) July 18, 2016