Flokksstjórn Demókrataflokksins bað í dag Bernie Sanders afsökunar á tölvupóstum sem benda til að þess að forystumenn flokksins hafi reynt að grafa undan forsetaframboði Sanders og sagði póstana „ófyrirgefanlega“.
„Við viljum biðja Sanders, stuðningsmenn hans og Demókrataflokkinn í heild afsökunar á þeim ófyrirgefanlegu athugasemdum sem koma fram í tölvupóstunum,“ sagði í yfirlýsingu frá flokksstjórn Demókrataflokksins við upphaf fjögurra daga flokksfundar í Fíladelfíu þar sem Hillary Clinton á formlega að hljóta útnefningu sem forsetaframbjóðandi flokksins.
„Þessar athugasemdir eru ekki lýsandi fyrir gildi flokksstjórnarinnar, né fyrir staðfasta trú okkar á hlutleysi við valferlið.“
Stuðningsmenn Sanders voru duglegir að láta í sér heyra á fyrsta degi flokksþingsins, en þeir púuðu á ýmsa ræðumenn og hrópuðu: „Bernie! Bernie! Bernie!“
Þrátt fyrir hávær mótmæli í Fíladelfíu bendir skoðanakönnun á vegum Pew Research til þess að 90% stuðningsmanna Sanders ætli að kjósa Clinton.