Lögregla í Bangladess hefur handtekið tvo til viðbótar í tengslum við dauða níu ára drengs sem var pyntaður með loftpressu í garnverksmiðju í bænum Rupganj. Áður hafði einn maður verið handtekinn, en allir eru þeir starfsmenn í verksmiðjunni.
Sagar Barman lét lífið vegna innvortis meiðsla á sunnudagskvöld en fjölskylda drengsins heldur því fram að samstarfsmenn hans í verksmiðjunni hafi troðið loftpressunni inn í endaþarm drengsins og kveikt á henni. Er þetta annað atvikið á tæpu ári þar sem drengir láta lífið vegna loftpressna.
Frétt mbl.is: Handtekinn vegna hryllilegs dráps á barni
Drengurinn starfaði í verksmiðju í bænum Rupganj, sunnan við Dhaka. Hann er sagður hafa verið að þrífa ákveðið svæði nálægt loftpressunni í verksmiðjunni þegar ráðist var á hann. Drengurinn var fluttur á sjúkrahús eftir að loftpressan var sett í endaþarm hans og lést hann þar aðeins nokkrum klukkustundum síðar.
Í Dhaka starfa milljónir barna í ýmsum störfum, mörg þeirra við vafasamar aðstæður. Lögregla leitar nú eiganda verksmiðjunnar og yfirmanna, en þeir eiga yfir höfði sér ákærur fyrir að ráða hundruð barna til starfa. Lögregla rannsakar jafnframt af hverju drengurinn starfaði í verksmiðjunni en í landinu er ólöglegt að ráða börn í vinnu undir 18 ára aldri.
Þrettán ára drengur lét lífið í svipuðu atviki í ágúst á síðasta ári í borginni Khulna. Málið vakti gríðarlega reiði og fjölmargir mótmæltu á götum úti og kröfðust réttlætis fyrir barnið. Tveir menn voru dæmdir til dauða vegna þess máls.