Nokkuð hefur verið fjallað um kringlótta, rauða bletti á bökum nokkurra keppenda á Ólympíuleikunum. Blettirnir eru eftir meðferð sem sögð er auka blóðflæði.
Litlir bollar eða skálar eru settar á bak fólks og kveikt er í eldfimum vökva inni í skálunum. Sog myndast og tog verður á húðinni. Því myndast rauðu blettirnir.
Frétt mbl.is: Hvaða blettir eru á bökum ÓL-keppenda?
Blaðamaður norska fréttamiðilsins Verdens Gang gekkst undir meðferðina og verður með fjölda bletta á bakinu næstu eina til tvær vikurnar. Í myndskeiðinu hér að neðan má sjá blaðamanninn í meðferðinni.