Borgarstjóri Cannes í Frakklandi hefur lagt bann við því konur klæðist svonefndum búrkíníum á baðströndum borgarinnar.
Búrkíní er sérstakur sundfatnaður, sem hylur allan líkamann, og múslimskar konur hafa klæðst.
Í frétt breska ríkisútvarpsins segir að borgarstjórinn, David Lisnard, hafi haldið því fram að fatnaðurinn sé „táknmynd fyrir íslamska öfgastefnu“ og gæti leitt til átaka.
Ákvörðunin hafi verið tekin til að halda frið og spekt á meðal almennra borgara.
Þær konur sem klæðast búrkíníum eiga nú yfir höfði sér fjársekt upp á 38 evrur, sem nemur um fimm þúsund krónum.
Strandverðir munu þó fyrst biðja þær um að skipta um sundföt eða yfirgefa ströndina.
Bannið tók gildi í lok júlímánaðar, en því hefur enn ekki verið beitt.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Frakkar banna klæðnað en árið 2011 varð Frakkland fyrsta landið í Evrópu til þess að meina konum að hylja andlit sitt að öllu leyti á almannafæri.
Fyrr í vikunni tilkynntu síðan forsvarsmenn vatnaskemmtigarðs í nágrenni borgarinnar Marseille í Frakklandi að sérstökum búrkíní-degi, sem halda átti 10. september, hefði verið aflýst.