John Hinckley Jr., maðurinn sem reyndi að ráða Ronald Reagan, þáverandi forseta Bandaríkjanna, af dögum fyrir rúmlega 35 árum, hefur verið látinn laus. BBC greinir frá þessu.
Hinckley var talinn ósakhæfur en hefur dvalið á lokaðri deild á geðsjúkrahúsi. Hinckley, sem er 61 árs, mun nú búa hjá aldraðri móður sinni í Williamsburg í Virginíuríki. Í úrskurði alríkisdómara frá því í júlí segir meðal annars að ekki sé talið líklegt að Hinckley eigi eftir að valda sjálfum sér eða öðrum skaða. Því sé ekki ástæða til að hann dvelji á lokaðri geðdeild lengur.
Hinckley þarf þó að fylgja ýmsum skilyrðum. Hann má til að mynda ekki ræða við fjölmiðla og þarf að sinna samfélagsþjónustu þrisvar sinnum í viku. Auk þess má hann ekki fara lengra en 50 kílómetra frá heimili móður sinnar og þarf að hitta sálfræðing tvisvar í mánuði.
Ronald Reagan, sem gegndi embætti forseta Bandaríkjanna 1981-1989, særðist í árásinni, sem átti sér stað í mars 1981, ásamt lögreglumanni og leyniþjónustumanni sem gættu öryggis hans. Blaðafulltrúi forsetaembættisins, James Brady, særðist einnig alvarlega, hlaut alvarlegan heilaskaða og var bundinn við hjólastól það sem eftir var ævinnar.