Donald Trump hefur svarað fyrrverandi Ungfrú alheimi, Alicia Machado, sem gagnrýndi Trump fyrir karlrembuleg ummæli í sinn garð. Trump segir ummæli Machado ógeðsleg.
Frétt mbl.is: Trump frekur og dónalegur
Forsetaframbjóðandinn hvatti Bandaríkjamenn til að skoða sögu Aliciu Machado vel og „kynlífsmyndbandið hennar.“ Trump gaf það einnig í skyn að Hillary Clinton, mótframbjóðandi hans í forsetakosningunum, hefði tryggt Machado bandarískan ríkisborgararétt en hún er frá Venesúela.
Cinton svaraði Trump á twitter: „Þetta eru fáránleg ummæli, jafnvel á mælikvarða Trumps.“
Í kappræðunumaðfaranótt þriðjudag tók Clinton Machado sem dæmi um hvernig Trump hagaði sér gagnvart konum. Hún sagði að Trump gæti verið viss um að Machado myndi kjósa í kosningunum í nóvember.