Mörg hundruð þúsund manns komu saman í dag til að mótmæla í miðborg Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu. Er þetta sjötta vikan sem mótmælendur koma saman til að lýsa óánægju sinni með Park Geun-hye, forseta landsins.
AFP segir þetta vera fjölmennustu mótmælin fram að þessu. Hluti mótmælendanna lagði leið sína að heimili Park og bar logandi kyndla og krafðist þess að hún segði af sér og yrði fangelsuð fyrir spillingu. Ásakanir um spillingu hafa skyggt á forsetatíð Park, sem er sökuð um að leyfa nánum vini að nýta sér tengsl sín til að hafa áhrif á stjórn ríkisins.
Frétt mbl.is: Hundruð þúsunda mótmæla forseta S-Kóreu
Lögreglan og talsmenn mótmælenda er ekki sammála um fjölda mótmælenda. Skipuleggjendur segja að þeir hafi verið 1,6 milljón en lögreglan segir þá vera um 320 þúsund. Lögreglan hefur hingað til alltaf sagt fjölda mótmælenda vera mun lægri en talsmenn mótmælanna segja þá vera.
Samkvæmt AFP eru þetta fjölmennustu langvinnu mótmæli sem efnt hefur verið til í landinu, frá því árið 1987 þegar þess var krafist að Suður-Kórea yrði lýðræðisríki.
Mótmælin eru ekki eingöngu bundin við borgina Seoul heldur eru einnig um 40 þúsund manns í borginni Daeg samankomin til að mótmæla forsetanum.
Ásakanir um spillingu hafa skyggt á forsetatíð Park, sem er sökuð um að leyfa nánum vini að nýta sér tengsl sín til að hafa áhrif á stjórn ríkisins.
Sjónarandstöðuflokkar í landinu vilja ákæra hana fyrir brot í starfi. Á föstudaginn næsta kemur í ljós hvort það verði samþykkt. Tvo þriðju hluta þingmanna þarf til að svo verði.