Kjörstaðir hafa verið opnaðir á Ítalíu. Þar fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem forsætisráðherrann Matteo Renzi hefur lagt framtíð sína að veði.
Hver sem útkoman verður er ljóst að margir fylgjast spenntir með framvindu mála í Evrópu.
Ef breytingatillögum stjórnar Renzi verður hafnað í kosningunum hefur hann heitið því að segja af sér.
Það gæti leitt til pólitísks óstöðugleika í landinu, auk þess sem óvissa gæti skapast í ítölsku efnahagslífi og einnig á meðal samherja þjóðarinnar í Evrópusambandinu.
Ef meirihluti Ítala styður ekki tillögur Renzi verður Fimm stjörnu-hreyfing grínistans Beppe Grillo með pálmann í höndunum í þingkosningum í kjölfarið.
Síðustu skoðanakannanir fyrir atkvæðagreiðsluna bentu til þess að andstæðingar breytinganna væru í meirihluta.
Frétt mbl.is: Stjórna öflugri áróðursvél