Bróðir pakistönsku samfélagsmiðlastjörnunnar Qandeel Baloch, hefur verið ákærður fyrir morðið á henni.
Muhammad Waseem viðurkenndi að hafa kyrkt hina 26 ára gömlu Baloh, sem skaust upp á stjörnuhimininn fyrir að birta sjálfsmyndir og myndbönd af sér á samfélagsmiðlum. Mörgum þótti það ögrun í landi þar sem flestir eru múslimar.
Hann viðurkenndi að hafa drepið systur sína en sagði að hann hefði gert það heiðursins vegna; hún hefði sett svartan blett á fjölskylduna með „óþolandi“ hegðun sinni.
Waseem segist ekki sjá eftir gjörðum sínum. Hundruð kvenna eru myrt á hverju ári í Pakistan til að verja „heiður“ fjölskyldunnar.
Waseem kom fyrir dómara í gær ásamt frænda sínum, Haq Nawaz. Lögregla sakar Nawaz um að vera vitorðsmaður Waseem en útskýrði það ekki nánar. Öðrum manni, leigubílstjóra að nafni Adbul Basit, var sleppt úr haldi eftir að tryggingagjald var greitt.
Qandeel Baloch var 26 ára og fræg á landsvísu fyrir djarfar myndir og texta sem hún birti á samfélagsmiðlum. Að mati sumra var hún fulltrúi nýrrar kynslóðar í Pakistan sem þorði að tjá sig um það sem brann á henni. Hún var jafnframt fulltrúi ungra stúlkna í landinu sem hefur svo lengi verið haldið niðri og hafði oft gagnrýnt feðraveldið sem stjórnar öllu í Pakistan.
Svokölluð „heiðursmorð“, þar sem konur eru drepnar af ættingjum sínum, eru nokkuð algeng í Pakistan en lög í landinu voru samþykkt í byrjun mánaðarins sem banna slík morð. Áður en lögin sem bönnuðu heiðursmorð voru samþykkt gátu einstaklingar sem frömdu heiðursmorð gengið lausir ef ættingjar fórnarlambsins höfðu fyrirgefið þeim.