13 tyrkneskir hermann létu lífið og fjöldi annarra slasaðist eftir að rúta var sprengd í borginni Kayseri í morgun.
48 hermann slösuðust í árásinni, samkvæmt yfirlýsingu frá hernum en þar kom einnig fram að einhverjir óbreyttir borgarar gætu hafa slasast.
Einungis er vika síðan að 44 voru myrtir í sprengjuárásum fyrir utan heimavöll knattspyrnuliðsins Besiktas í Istanbul. Klofningshópur úr Verkamannaflokki Kúrdistan (PKK), Frelsisfálkar Kúrdistan (TAK), bar ábyrgð á tilræðunum.
Starfandi forsætisráðherra, Veysi Kaynyak, sagði að það væri margt óþægilega líkt með árásunum í dag og þeim sem voru fyrir viku síðan.