Mál fjöldamorðingjans Anders Behring Breivik verður tekið fyrir hjá norskum áfrýjunardómastól í dag. Norska ríkið var í apríl sakfellt fyrir að hafa brotið mannréttindasáttmála Evrópu við meðferðina á Breivik og áfrýjaði ríkislögmaður dómnum.
Norska ríkið var talið hafa brotið gegn 3. grein sáttmálans og dæmt til að greiða 330 þúsund norskar krónur í málskostnað til handa Breivik.
Í frétt mbl.is frá því í maí kemur fram að í áfrýjunargögnum segi að ríkið líti svo á að meðferðin á Breivik hafi verið mannúðleg. Snýr áfrýjunin bæði að heimfærslu til lagaákvæða og sönnunarmatinu.
Segir í áfrýjunargögnunum að Breivik hafi allt frá því að hann var handtekinn fyrst fengið mannúðlega meðferð. Hafi fangelsisvist hans verið samkvæmt lögum í landinu og verið aðlöguð í samræmi við hegðun hans af fulltrúum fangelsisyfirvalda.
Þá er því haldið fram að dómstóllinn hafi ekki tekið tillit til þeirrar hættu sem enn stafar af Breivik. Í dómnum segir að fangelsisyfirvöld hafi ofmetið hættuna sem stafar af honum og að yfirvöld hafi látið öryggissjónarmið ráða of miklu.
22. júlí 2011 kom Breivik, klæddur sem lögreglumaður, á eyjuna Utøya þar sem ungliðahreyfing Verkamannaflokksins var í sumarbúðum. Hann skaut 69 manns, aðallega ungmenni, til bana í eyjunni en í klukkutíma elti hann fórnarlömb sín uppi, meðal annars þau sem höfðu flúið út í ískalt vatnið. Fyrr um daginn hafði hann drepið átta mann sem því að sprengja sprengju við opinbera byggingu í Ósló.
Breivik var dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir morðin og hægt er að framlengja dóminn ef hann þykir enn vera ógn við samfélagið. Hann hefur yfir þremur klefum að ráða í fangelsinu þar sem hann getur spilað tölvuleiki og horft á sjónvarp. Hann er með tölvu án aðgengis að netinu, líkamsræktartæki, bækur og dagblöð. Þrátt fyrir þetta taldi héraðsdómur aðbúnað hans brjóta gegn þriðju grein mannréttindasáttmálans.
Er það einkum einangrun Breiviks sem þykir brot á sáttmálanum en honum er haldið fjarri öðrum föngum í öryggisskyni. Á þeim fimm og hálfu ári sem hann hefur setið á bak við lás og slá hefur hann aðeins fengið að tala við fangaverði og sérfræðinga, svo sem lögmenn og lækna, bak við glervegg. Ein undantekning hefur verið á þessu þegar móðir hans fékk að heimsækja hann skömmu fyrir andlát sitt.
Undirréttur setti einnig spurningarmerki við ýmislegt annað sem Breivik þarf að þola í fangelsinu. Svo sem að leitað sé á honum nöktum, hann sé ítrekað hafður í handjárnum og vakinn oft á nóttunni en það var í upphafi fangavistarinnar.
Réttarhöldin nú standa í sex daga og segja Norðmenn þau rífa aftur upp gömul sár en í undirrétti heilsaði Breivik að nasistasið þegar hann mætti í réttarsalinn og kvartaði sáran yfir köldu kaffi og frosnum mat. Líkti hann sér jafnvel við Nelson Mandela.
Fjölskyldur fórnarlamba hans biðja þá sem eiga um sárt að binda að undirbúa sig undir það versta. Að Breivik takist enn og aftur að komast í sviðsljós fjölmiðla.