Þrjú börn eru í hópi þeirra tíu sem fundist hafa á lífi í dag, eftir að snjóflóð féll á hótel í Abruzzo-héraði á Ítalíu á miðvikudag.
Fréttastofa AFP hefur eftir björgunarsveitarmönnum að björgunarsveitarmenn hafi í dag fundið móður og son hennar og að tekist hafi að staðsetja átta manns til viðbótar á lífi undir snjónum og rústum hótelsins.
Frétt mbl.is: Tvær stúlkur fundust á lífi
Mæðgin voru flutt með þyrlu á sjúkrahús eftir að björgunarsveitarmenn náðu þeim upp, en björgunarsveitir hafa ekki enn náð að grafa upp hina átta sem grafnir eru undir snjónum og rústum hótelsins.
Misvísandi upplýsingar hafa verið um hve margir hafi fundist á lífi í rústum hótelsins, en talið er að að minnsta kosti 25 manns hafi verið á hótelinu þegar snjóflóðið féll.
AFP hefur eftir Luca Cari, talsmanni slökkviliðsins á staðnum, að tíu manns hafi fundist á lífi í rústunum í dag. Tveir til viðbótar fundust á lífi í gær og þann dag fundu björgunarsveitir einnig lík tveggja. Talið er því að 13 manns séu enn grafnir í snjónum.
Rigopiano-hótelið er um 90 km frá upptökum jarðskjálftanna sem voru við Montereale á miðvikudag, lítið þorp suður af Amatrice þar sem 300 manns hið minnsta fórust í öflugum jarðskjálfta í ágúst á síðasta ári. Hótelið stóð í hlíðum Gran Sasso-fjallsins sem er hæsti tindur miðhluta Ítalíu.