Átta voru drepnir í hnífaárás í Xinjiang-héraði í gærkvöldi, þar af þrír árásarmenn sem voru skotnir til bana af lögreglu. Tíu særðust í árásinni sem varð gerð í mannmergð í Pishan-sýslu.
Lögreglan var komin á vettvang aðeins nokkrum mínútum eftir að árásin var gerð en enn er ýmislegt á huldu varðandi árásina, samkvæmt fréttatilkynningu sem gefin var út af yfirvöldum. Lögregla segir árásarmennina vera óeirðarseggi en í héraðinu búa fjölmargir af Uighurs-ættbálkinum.
Xinjiang er hérað í vesturhluta Kína, nærri landamærunum við Kírgyzstan. Um 46% íbúa eru Uighurs en um 39% eru af Han-ættbálki. Þeir sem eru Uighurs eru flestir múslimar. Átök hafa blossað upp milli fólks af þessum ættbálkum með reglulegu millibili.
Stjórnvöld í Peking saka aðskilnaðarhópa Uighur um að bera ábyrgð á árásum í héraðinu en það er ríkt af náttúruauðlindum.