Þekktasti kvikmyndagerðarmaður Finnlands, Aki Kaurismäki, var valinn leikstjóri ársins á kvikmyndahátíðinni í Berlín í kvöld. Ungverska ástarsagan Testrol es lelekrol í leikstjórn Ildikó Enyedi hlýtur Gullbjörninn í ár.
Kaurismäki var þakklátur þegar hann tók við verðlaununum í Berlín í kvöld en hann hefur lýst því yfir að myndin Toivon tuolla puolen verði hans síðasta. Hann vonar að hún fái fólk til þess að finna til samúðar og samkenndar í garð flóttafólks sem leitar hælis í Evrópu.
Georg Frederich var valinn leikari ársins fyrir hlutverk sitt í Helle Nächte og Kim min-hee leikkona ársins fyrir hlutverk sitt í Bamui haebyun-eoseo honja.
Silfurbjörnin hlaut myndin Félicité í leikstjórn Alain Gomis.
Leikstjórinn Paul Verhoeven var formaður dómnefndar en auk hans voru þau Maggie Gyllenhaal, Julia Jentsch, Diego Luna, Wang Quan’an, Dora Bouchoucha Fourati og Ólafur Elíasson í dómnefndinni.
Kvikmynd Gianfranco Rosi, Fire at Sea, hlaut Gullbjörninn í fyrra en hún var einnig tilnefnd til Óskarsverðlauna í flokki heimildarmynda.
Hér er hægt að skoða alla verðlaunahafana