Fimm manns fórust þegar flugvél brotlenti á verslunarmiðstöð í Melbourne í Ástralíu. Verslunarmiðstöðin, sem er rétt við Essendon-flugvöllinn, var ekki opin þegar slysið varð. Svartan reyk lagði upp af flugvélinni.
Fréttavefur BBC hefur eftir Stephen Leane, aðstoðarlögreglustjóra í Victoria-fylki, að svo virðist sem flugvélin hafi orðið fyrir „alvarlegri vélarbilun“ stuttu eftir flugtak.
„Á þessari stundu vitum við ekki til þess að fleiri hafi farist en þeir sem voru um borð í vélinni,“ sagði hann. „En þegar horft er yfir eldhafið er það ótrúleg heppni að enginn skuli hafa verið staddur fyrir aftan verslanirnar eða á bílastæðinu og að engir aðrir hafi svo mikið sem slasast.“ Vélin brotlenti um klukkustund áður en búðir í verslunarmiðstöðinni áttu að opna.
Reuters-fréttastofan hefur eftir vitnum að kviknað hafi í vélinni um leið og hún lenti.
Ástralskir fjölmiðlar segja fjóra Bandaríkjamenn hafa verið farþega um borð í vélinni, sem var á leið til Tasmaníu, og að a.m.k. tveir þeirra hafi verið á leið þangað í golfferð.
„Þetta er hryggilegur dagur,“ sagði Daniel Andrews, forsætisráðherra Victoria-fylkis. „Hópur fólks hefur farist í versta flugslysi sem orðið hefur í fylkinu í 30 ár.“
Ástralska samgönguslysanefndin rannsakar nú tildrög slyssins, en að sögn ástralskra fjölmiðla hafði flugmaðurinn áratuga reynslu og átti að baki flekklausan feril.